hvað er málið með að vera latur?? af hverju gerir maður sér
þetta?
Ég er búinn að reyna að rífa mig upp af rassgatinu í allan dag
og hunskast uppí íþróttahús að reyna að hreyfa mig eitthvað en
ótrúlegt en satt þá finn ég mér alltaf eitthvað á netinu að
gera...bara til að fresta því að fara!! ég þoli ekki svona
leti...
En ég er að spá í að taka rólega helgi og jafnvel frekar mikið
rólegan mánuð bara drykkjulega séð...það er byrjuð vertíð á sjónum
þannig að maður nennir bara ekki að vera alltaf eitthvað sjóveikur
og slappur í mok fiskeríi...það kemur nú í ljós hvað það endist hjá
mér
Ég get nú samt ekki sagt að ég hafi verið alveg latur í allan
dag því áðan tók ég upp á því að þrífa alla íbúðina!!
Og það er
ekkert smá sem manni líður vel eftir það
Ég er nú svona ennþá að gera upp við mig hvort maður eigi að
kíkja á ráðhúskaffi í kvöld...það er nefnilega skemmtikvöld hjá
sjálfstæðis....gæti verið að maður fari og slafri í sig einum
öllara...lemur allt í kjós
EN hvernig væri að hætta þessu og fara að rífa sig upp og hreifa
sig????
later
Júnsi lati